vér munum eyða páskahátíðum á seyðisfirði og egilsstöðum. ef einhver á leið þar um má endilega hafa samband.
í fréttum er þetta helst:
ég er búin að fá nýja vinnu og flyt mig í verslun á laugarveginum þriðjudaginn 13. húrra fyrir því!
bakmál eru öll á uppleið, það er ekki endanlegur dauðadómur að fá brjósklos fyrir þrítugt.
ættmóðir kattafjölskyldunnar í dalskógunum; hcava vilhelmsdóttir er látin. hún lést úr krabbameini og er hennar sárt saknað. æt blóm og kattanammi sendist til skugga á vesturgötunni.
ég er búin að panta 15 stiga hita og sólskin á seyðisfjörð yfir páskana. eins gott að það standist:þ | fangor 15:28