fangor flúði til netheima


skrítna fólkið:

hr. muzak
snorgill
skotta
sigga lára
siggadís
loki
jódís
heiða skúla
bróðir minn í fjarskanum
rósa elísabet
maría mágkona
varrius
gambrinn
eva
yfirnorn ásta
tröllatíkin
áslaug
gummi erlings
gben
þrási metal
valkyrjan fyrir vestan
breki
júlljúll

hljómsveitirnar mínar:

hraun
ampop
hálfvitarnir

fluguveggurinn:

siggi pönk
stebbi páls
pallih
matarkonan
ari páll og lilja
kiddi
davíð þór

skemmtilegt:

nornabúðin
foreyska poppsidan
baggalútur
nornaklúbburinn naflaló
leikir
allur heimsins matur
wulff morgenthaler
nördadót
hugleikur
athyglisýkin

letihaugar:

eðlukonan dísa
guðfinna
halla
hæfileikarinn
raritet
nornirnar






eldri skrif:

 


mánudagur, júní 19, 2006

 
vísitölufjölskyldan heldur austur á land í dag. þar á að rigna á morgun. tilviljun?

|



laugardagur, júní 17, 2006

 
gleðilega þjóðhátíð. sá sem á stærstu regnhlífina, hann vinnur.


|



fimmtudagur, júní 15, 2006

 
svandís mín á ammli í dag og fær hún allar hamingjusóskir í heiminum frá íbúum vesturgötunnar.

fjölskyldan bíður eftir sumrinu og hefur ákveðið að flýja súldarlita og regnvota höfuðborgina komandi mánudag. jg er að spila með ampop 17 júní, hálfátta á arnarhóli og hálftíu á rútstúni kópavogsbúa fyrir þá sem vilja berja þá augum. geri ráð fyrir því að við úlfhildur verðum við arnarnhól ef einhver vill standa með okkur.

|



mánudagur, júní 12, 2006

 
og þá vitum við afhverju það heitir leikskóli bandalagsins...:þ

öfund ? nauts.

|



sunnudagur, júní 11, 2006

 
jg kom heim í heilu lagi, engilbarnið vex og dafnar og maginn á mér er kominn niður í 5mánaða óléttu. allt stefnir sumsé í réttar áttir. ég missti reyndar af fyrsta stjórnarfundinum mínum hjá Hugleik sökum barns og er það miður.

við jg sendum öllum á húsabakka öfundarkveðjur, höfum sett stefnuna á skólann 2007.

sólin ætlar að halda sig austan megin á landinu, sé fram á að gæfulegast væri að elta hana bara þangað og vera fram að þjóðlagahátíð. hef nefnilega lúmskan grun um að hún ætli að forða sér suður um leið og ég fer austur í júlí. svo það er betra að vera skrefinu á undan....

|



mánudagur, júní 05, 2006

 
við úlfhildur erum einar heima meðan jg leikur rokkstjörnu í útlöndum. hann skilar sér vonandi aftur á fimmtudagskvöldið. mamma ætlar að koma og vera með okkur þangað til. við komumst svo vonandi út úr húsi næstu helgi, svona rétt til að fá okkur ferskt loft. ég er að mygla af þessari inniveru allri saman og sé fram á að tapa geðheilsunni ef ég kemst ekki út undir bert loft fljótlega, fyrir nú utan það að ég næ andskotan ekkert af mér þessari meðgöngufitu ef þessu heldur áfram. þá loksins ég kemst út heimta ég sólskin, bara svo það sé á hreinu....

annars er lífið gott.


|



föstudagur, júní 02, 2006

 
hér eru nýjar myndir af úlfhildi stefaníu

|



fimmtudagur, júní 01, 2006

 
lífið er almennt ljúft, við étum, drekkum og sofum eftir hendinni. barnið er vært og þægilegt í alla staði þvert á allar svartsýnisspár. við stálumst í heimsókn til flotans þegar úlfhildur stefanía var vikugömul, svona rétt til þess að anda að okkur súrefni. hið besta mál og spaugileg mynd af þeim gyðu saman. mér fannst nú aldrei gaman í dúkkó, var meira á löggu og bófa eða starwarsleikjum. batnandi fólki er þó best að lifa, mér finnst gaman að klæða barnið í einhver krúttföt. einhversstaðar á meðgöngunni breyttist skynjun mín á barnafatnaði og mér fór að finnast yfirgengilega sætt að sjá litlar útgáfur af flíkum. sem er eiginlega bara fyndið.
við höfum fengið margt ágætra heimsókna með þægilegu millibili, ég er ennþá á nöfinni hvað orku varðar svo það er hið besta mál. áhugasamir mega líta við, bara senda sms fyrst til að fá tímasetningar á hreint, svo er ágætt að fólk miði við að stoppa stutt, svona fyrst um sinn.

maður verður náttúrulega að finna sér eitthvað til að dunda við í orlofinu. sniðugt, held ég.

|



Powered By Blogger.
Weblog Commenting by HaloScan.com