fangor flúði til netheima


skrítna fólkið:

hr. muzak
snorgill
skotta
sigga lára
siggadís
loki
jódís
heiða skúla
bróðir minn í fjarskanum
rósa elísabet
maría mágkona
varrius
gambrinn
eva
yfirnorn ásta
tröllatíkin
áslaug
gummi erlings
gben
þrási metal
valkyrjan fyrir vestan
breki
júlljúll

hljómsveitirnar mínar:

hraun
ampop
hálfvitarnir

fluguveggurinn:

siggi pönk
stebbi páls
pallih
matarkonan
ari páll og lilja
kiddi
davíð þór

skemmtilegt:

nornabúðin
foreyska poppsidan
baggalútur
nornaklúbburinn naflaló
leikir
allur heimsins matur
wulff morgenthaler
nördadót
hugleikur
athyglisýkin

letihaugar:

eðlukonan dísa
guðfinna
halla
hæfileikarinn
raritet
nornirnar






eldri skrif:

 


föstudagur, apríl 25, 2008

 
við úlfhildur erum austur á landi hvar vorið er tíu dögum seinna á ferðinni en sunnanlands. aukafrídagur sem þurfti að nota og jg býr á fídbakka fram á morgundaginn svo við ákváðum að heimsækja ömmu og afa á meðan. nýja hraunplatan er sumsé að verða tilbúin og er væntanleg til landsins í byrjun júní ef áætlanir standast allar. sjö, níu, þrettán!

rakst á þennan skemmtilega hlekk hjá varríusi og stóðst ekki mátið. nú vill svo einkennilega til að við jg erum bæði fædd undir topplögum frá sir elton john. nánar tiltekið "island girl" hjá honum og "don't go breaking my heart" hjá mér. þetta getur nú tæpast verið tilviljun...

|



mánudagur, apríl 14, 2008

 
sumar, sumar, sumar og sól. verður ekki bara að taka síkrettið á þetta?
mér áskotnaðist hjólhestur í dag. hjólaði um hverfið skríkjandi af kátínu og andaði að mér lyktinni af vorinu. hún var reyndar frekar daunill, það er bæði svína- og kjúklingabú hér í grendinni og þar var verið að lofta út. mætti ég þá biðja um fjósalyktina frá egilsstaðabúinu sem færði manni vorið fyrir austan. þrátt fyrir fnyk fyrir vitum ( skelfilega er þetta asnalegt orðalag, læt það halda sér) er umhverfið hér kjörið til útivistar hvers konar og ég sá í hillingum hjólaferðir um sveitina með litla grís aftaná. mig vantar barnastól fyrir hjólhest ef einhver lumar á slíkum í geymslunni.

úlfhildur er orðin ótrúlega stór og dugleg. í dag náði hún sér í blýant og bað um blað til að lita á. hún stóð við stofuborðið í smástund, kallaði svo í mig og sagði: "mamma, þetta er hvalurinn sem gleypti tralla". svo bað hún mig um að hringja í afa og ömmu svo hún gæti sýnt þeim myndina. þykir lógískt að fólk sjái í gegn um símann.
langt síðan ég hef tekið tilgangsleysispróf:


|



þriðjudagur, apríl 08, 2008

 
ekki dugar vol og víl. skapsmunir hafa snöggtum skánað eftir árshátíð hraunliða liðna helgi. borðuðum á hótel heklu og dönsuðum út í nóttina. við viðhengin það er, strákarnir þurftu náttúrulega að spila fyrir matnum okkar...:Þ eftir að hafa orðið hált á tölvugítarhálsinum í eftirpartíinu hef ég sett mér það markmið að ná afburðafærni í gítarhetjuleiknum svo ég verði mér ekki til skammar aftur. (verst að hann kostar formúgur og ekki spanderar maður í tölvuleiki í krepputíð)
svo þarf náttúrulega að sýna gilitrutt. það verður vonandi í þessum mánuði.
ég þarf að komast til að hitta hana svandísi mína. það skal hafast á morgun eða annað kvöld og hana nú!

|



Powered By Blogger.
Weblog Commenting by HaloScan.com