vér nördar höfum sitthvað að hlakka til þessi jólin. sjá hér, td. þessi mynd lofar virkilega góðu og vonast ég til að hún nái að þurrka út hryllinginn með robin williams hér um árið. hérna er líka sniðug mynd sem gerði lukku á sundance.
eftir þrotlausar æfingar á nýju íþróttinni minni hafa ofurkraftar mínir náð fullum styrk að nýju. ég mun því standa af mér allar flensur heimsins þetta árið. hér með ákveðið....
ég er búin að finna mér nýtt áhugamál!! ég hlýt að geta fengið styrki frá visa og íþróttasambandinu og alls konar fyrirtækjum sem styrkja afreksfólk í íþróttum. ég sé fram á glæstan feril. hef stundað íþróttina frá barnæsku, verið nokkuð sigursæl í þeim viðureignum sem ég hef háð fram að þessu.
ætli einhver geti útvegað mér æfingaaðstöðu? og hvað þarf ég marga þjálfara? | fangor 14:50
mánudagur, október 27, 2003
fín helgi. dagskráin í listasafninu gekk vel, og örleikritahátíðin í borgarleikhúsinu var stórkostleg. fullt af góðum stykkjum, nokkur frábær og ekkert hreinlega leiðinlegt eða illa flutt. sem má teljast gott þegar litið er til þess að sýnd voru 21 örleikrit alls staðar að.
við kisi stóðum okkur alveg með ágætum í skiptitónlistinni með snillingunum togga,ármanni, bjössa og snorra. ég vil að minnsta kosti halda því fram. einnig fékk ég það skemmtilega hlutverk 10 mínútum fyrir upphaf hátíðarinnar að kalla fram nöfn hvers verks fyrir sig. alltaf gott að muna eftir kynninum, skipulag hvað...:þ en annað skipulag var með ágætum. alveg hreint.
hamingjuóskir dagsins fær tumi mágur sem útskrifaðist um helgina og þykist merkilegri en ég fyrst hann er kominn með gráðu. hnuss. ég get líka alveg fengið mér gráðu. um leið og ég nenni....:þ | fangor 13:36
föstudagur, október 24, 2003
í dag er minn dagur!!! (og já, fjöldi upphrópunarmerkja er í beinu samhengi við sálarástand viðkomandi...)
leikles dagskrá sem ég fékk í hendurnar í gærkveldi í hafnarhúsinu í dag fyrir fullt af fólki. ég var búin að fá hlutverk sem sögumaður til að tengja kafla. sem var fínt. þægilegt og gott. svo fékk ég símtal fyrir 10 mínútum sem sagði að ég ætti að leiklesa ásamt "öðrum" leikkonum kafla úr dagskránni. 5 mismunandi konur að ég held. *svitn* æfing klukkan eitt, sýning kl. 4.
jæks
svo er bara að heimta hærri laun.... | fangor 10:23
miðvikudagur, október 22, 2003
ég er með hausverk. það er slæmt. en hins vegar get ég huggað mig við að ég er rebell:
snorri komst ekki áfram í keppninni, sem er að mínu mati ósanngjarnt. hann átti annað sætið sannarlega skilið.
dagurinn verður helgaður andleysi:
You are Form 3, Unicorn: The Innocent.
"And The Unicorn knew she wasn't meant to go into the Dark Wood. Disregarding the advice given to her by the spirits, Unicorn went inside and bled silver blood.. For her misdeed, the world knew evil."
Some examples of the Unicorn Form are Eve (Christian) and Pandora (Greek).
The Unicorn is associated with the concept of innocence, the number 3, and the element of water.
Her sign is the twilight sun.
As a member of Form 3, you are a curious individual. You are drawn to new things and become fascinated with ideas you've never come in contact with before. Some people may say you are too nosey, but it's only because you like getting to the bottom of things and solving them. Unicorns are the best friends to have because they are inquisitive.
í kvöld mun vinur vor snorri hergill taka þátt í keppni um uppistandarann 2003. keppnin fer fram í þjóðleikhúskjallaranum, og húsið opnar klukkan átta að staðartíma.
eins og flestum mun kunnugt gildir í svona keppni að ná salnum á sitt band. þeir sem ekki þurfa að vera viðstaddir jarðarfarir í kvöld eru því hvattir til að mæta og sýna stuðning sinn í verki, þar sem snorri mun etja kappi við valinkunna grínara og verður fróðlegt að sjá hvernig leikar munu fara
þeir sem vilja mæta með fána og andlitsmálningu er bent á aðdáendaklúbbinn sem hefur aðsetur sitt á vesturgötunni.
aðeins klukkutími þar til maðurinn minn skilar sér......jibbí!
komin á 3 season buffy. my life is so exiting... | fangor 16:02
mánudagur, október 13, 2003
helgi rauðvínsdrykkju og makinda lokið.
sakna mannsins á skipinu allverulega, þrátt fyrir að viðhaldið hafi sinnt hlutverki sínu með sóma :þ hann hefur nú hlotið nýtt nafn sem vinur vor uppistandarinnskellti fram í stuttri heimsókn í gærkveldi. kisi heitir auðvitað sófus. hvað annað?
vonast til að fá manninn minn heim í nótt, hef samt ekki hugmynd um hvort það gengur eftir eða hvort hann kemur næstu nótt. saknandi og prúð eiginkona sem ég er..... | fangor 13:26
föstudagur, október 10, 2003
restin af þessum degi fer í afneitun.
maðurinn minn er ekki að stíga um borð í þetta skipí 4 daga siglingu um bahamas í boði fyrirtækisins. miami var ekkert bara yfirskin. það verður ekkert gaman hjá honum. það er ekki kalt á íslandi. það er ekkert gaman að snorkla með höfrungum og í einhverjum kóralrifum. mig langar ekkert til útlanda.
ég er upprisin!!! enda ekki seinna vænna. kominn föstudagur...:þ
síðustu dagar hafa liðið hjá á loðnu verkjalyfjaskýi, er búin að kynnast sófanum mínum afar náið. dásamlega fólkinu sem ég þekki færi ég bestu þakkir fyrir að koma og sitja hjá mér, elska ykkur öll.
ásta notaði tækifærið og laumaði
fyrstu 2. seríunum af buffy inn á mig, varnarlausa í verkjalyfjavímunni. síðustu tvö kvöld hafa því verið undirlögð af bestu skemmtan, vampýrur, múmíur, djöflar og alls kyns dót drepið í bland við sápuópersk ástarævintýr. dásamlegt alveg.
þó að ég sé risin úr rekkju er ekki þar með sagt að ég yfirgefi sófann alveg strax, í kvöld er idol-áhorf. hverjir vilja memm? | fangor 09:36
þriðjudagur, október 07, 2003
auglýsi lítið notað móðurlíf til sölu í skiptum fyrir nýtt. á sama stað óskast sófagestir næstu daga til að halda lítilli norn félagsskap. | fangor 13:12
mánudagur, október 06, 2003
Viðburðarrík helgi að baki. það er sök sér þegar vinir manns verða þrítugir. búin að upplifa það nokkrum sinnum. en fertugir? úff.
skemmtilegasta fertugsafmæli sem ég hef farið í að baki, borðskálin var " guðjón, við samhryggjumst!" og annað eftir því....
í gær var sett nýtt met í leti og kósíheitum á vesturgötunni. mission dagsins var að standa ekki upp úr sófanum til að gera nokkuð af viti. það tókst. kúrði með heimilisfólki og fastagestum af mikilli innlifun..... 3 kisar og tveir bokkar í einni hrúgu, það er bara sætt. við héldum okkur við letiefnið með áhorfi á barnaefni síðasti dagur ásþórs á heimilinu, knúsaði hann bless í morgun. hans verður sárt saknað.
í kvöld ætlar góða konan að koma heim til mín og elda mat handa mér og mínum. namminamm. stefnt að rólegheitum, horfum á vitleysingana leika sér í idol, spilum svo eitthvað skemmtilegt. jibbíkóla. | fangor 14:53
fimmtudagur, október 02, 2003
í kvöld er stefnt á uppistand snorra hergils í þjóðleikhúskjallaranum. við raritet ætlum að mæta, fríða föruneyti er boðin velkomin ef hún vill koma með. allir sem þekkja snorra vita að hann er fyndinn. þeir sem þekkja hann ekki eru eindregið hvattir til að kynna sér málið.
það stefnir semsagt í tvö kvöld af hlátri í þessari viku. er það vel. | fangor 09:52
miðvikudagur, október 01, 2003
það var virkilega skemmtileg stemming á vesturgötunni í gær. 3 að horfa á vonda/skemmtilega mynd, og síðar bættust í hópinn einn fullur og annar freðinn. prýðisskemmtan alveg.
ég kann vel við að hafa fólk í sófanum mínum sem ég get hlegið með.