næstu vikuna verðum við hjónakorn á spáni ásamt fjölskyldunni. samnornum mínum óska ég til hamingju með opnun nornabúðarinnar sem haldin verður í fjarveru minni og öðrum ánægjulegra stunda. | fangor 01:20
mánudagur, júlí 18, 2005
ég er í sumarleyfi. við jg vorum á þjóðlagahátíð með stompnámskeið, þaðan fór ég austur á seyðisfjörð og sat lunga-hátíðina 5. árið í röð. í fyrsta sinn var ég ekki að kenna svo ég settist við trésmíðar og bjó til blásturlurk. nánari útskýringar koma síðar. á smíðaverkstæðinu urðu til nokkrar smásögur, " goddur og galdralurkurinn", "nanna og töfrahristurnar" og " muff og villisvínið". verða þær fullskrifaðar við fyrsta tækifæri.
mér skilst að kommentakerfið sé líka í sumarfríi og verður því kippt í liðinn þegar ég næ tali af yfirnorn ástu og hún hefur tíma til að hjálpa mér að lagfæra og setja inn einhvurt vingjarnlegt myndaforrit svo fleiri fái að njóta myndræns afraksturs sumarsins, sem er nokkur.
enn hefur ekki tekist að galdra í mig barn,allar fréttir af slíku eru stórlega ýktar.
héðan er stopulla færslna að vænta þar til ég verð búin koma upp fyrirhuguðum breytingum. á eftir 2 ferðasögur og allskyns fínerí.
það er vert að taka fram: ég hata fólk sem ferðast um á jeppa með fellihýsi. þá sérstaklega palomino fellihýsi. einhversstaðar situr maður og hlær ofan á stóra peningafjallinu sem hann eignaðist með því að selja fávitum fellihýsi. ég ætla að finn'ann. og keyra með hann hringinn. gá hvort hann lætur ekki innkalla draslið. eða skammast sín. í það minnsta.