komin heim. rigning frá helvíti. lítið gaman. *hnuff*
hitti skemmtilegt fólk í dag. afskaplega gaman. þetta jafnast allt saman út. *pollíönnuleikur* | fangor 20:53
miðvikudagur, júlí 16, 2008
það er ósköp indælt í sveitinni þrátt fyrir svikult sumarveður. fjölskyldueiningin hefur hugsað sér til hreyfing suður á bóginn á helgi komandi. ég var komin með netta kvíðaröskun yfir því að þurfa aftur til vinnu strax á þriðjudaginn en áttaði mig svo á því að ég byrja ekki aftur fyrr en 28.júlí, svo ég hef rúma viku til að njóta heimavið áður en ég tekst við stelpunum mínum aftur. þær eru yndislegar en það ætti að vera lögboðið 8 vikna frí fyrir starfsmenn leikskóla rétt eins og við aðra skóla. börn eru jú eilítið krefjandi á leikskólaaldri. mér þykir líka svolítið sérstakt að þeim sé gert að sækja skóla allt árið utan 4 vikna sem þau eru skikkuð í leyfi, en menntaskólakrakkar þurfi 2 1/2 mánuð í frí. burtséð frá öllum rökum um sumarvinnur og þessháttar. það er nú það. | fangor 22:01