fangor flúði til netheima


skrítna fólkið:

hr. muzak
snorgill
skotta
sigga lára
siggadís
loki
jódís
heiða skúla
bróðir minn í fjarskanum
rósa elísabet
maría mágkona
varrius
gambrinn
eva
yfirnorn ásta
tröllatíkin
áslaug
gummi erlings
gben
þrási metal
valkyrjan fyrir vestan
breki
júlljúll

hljómsveitirnar mínar:

hraun
ampop
hálfvitarnir

fluguveggurinn:

siggi pönk
stebbi páls
pallih
matarkonan
ari páll og lilja
kiddi
davíð þór

skemmtilegt:

nornabúðin
foreyska poppsidan
baggalútur
nornaklúbburinn naflaló
leikir
allur heimsins matur
wulff morgenthaler
nördadót
hugleikur
athyglisýkin

letihaugar:

eðlukonan dísa
guðfinna
halla
hæfileikarinn
raritet
nornirnar






eldri skrif:

 


mánudagur, júní 30, 2008

 
við mæðgur höldum austur á bóginn komandi föstudagskvöld. jg verður einn í bænum í viku en kemur svo austur til okkar. þá helgina ætlum við hjónakornin reyndar að vera á áhugaverðustu útihátíð ársins; úlfaldanum, þar sem hraun ætla að spila þann 12.júlí. hún er haldin við mývatn og ætti að verða gaman. síðast þegar jg spilaði á mývetnskri útihátíð kviknaði í sviðinu.
þeir sem eiga heimangengt ættu endilega að bregða sér í bíltúr. þó ekki væri nema til að koma með okkur í útilegu, svona hraun í hrauni stemmning...

fréttir vikunnar hljóta að teljast þær að svandís flytur sennilega heim í haust. húrra!

|



mánudagur, júní 23, 2008

 
á sunnudaginn settist ég niður með skemmtilegu fólki og las leikrit. þar sem veðrið var gott sátum við úti með kaffi og kruðerí í eina 4 tíma. það er skemmst frá því að segja að ég sólbrann hressilega á bringu og öxlum. nú er ég ekki bara bleik í kinnum heldur svona jafnbleik niður undir geirvörtur. smart.
ég er ennþá ánægðari með vinnuna mína þessa dagana þar sem við getum eitt heilu og hálfu dögunum útivið. ég er hinsvegar dálítið farin að örvænta um að enn muni snjóa í fjöll þegar við úlfhildur förum austur í júlí. sú einmuna veðurblíða sem einkenndi æsku mína á héraði virðist hafa yfirgefið svæðið. flutt suður sennilega. fékk ekki vinnu í álverinu.

|



miðvikudagur, júní 18, 2008

 
útgáfutónleikar að baki, gleði og hamingja ríkir í herbúðum hraunliða. tónleikagestir voru um 400, frábær stemmning og strákarnir í fantaformi. hljómsveitinni og kátum gestum tókst að klára allan bjórinn í húsinu sem telur tvo bari og eina keiluhöll. það hlýtur að teljast met í einhverju..:Þ
platan er komin í allar betri hljómplötuverslanir landsins. hún er meira að segja til í skífunni svo þeir sem eiga eftir að nálgast eintak hafa fátt sér til afsökunar.
koma svo!

|



Powered By Blogger.
Weblog Commenting by HaloScan.com