það er eitthvað yfirnáttúrulega fallegt við 3 konur sofandi í einni sæng með kött. notalegt að lúlla hjá mægðunum á eggertsgötu í nótt. krílið hefði þó mér að sársaukalausu mátt vakna örlítið seinna en 6 í morgun. *geisp*.
það kom þó ekki til af góðu að ég gisti eggertsgötuna í nótt, vesalings kjartan liggur á sjúkrahúsi með óskildgreint bágti. fangor mun því sinna þeim mægðum af bestu getu meðan ástandið varir, ekki geta þær verið karlmannslausar til lengdar..:þ | fangor 13:33
fimmtudagur, september 25, 2003
það er ekki seinna vænna en að finna upp á einhverju sniðugu áður en haustdrunginn hellist yfir af fullum þunga.
ég skaust því út í hádeginu og átti heitan ástarfund með viðhaldinu í öskuhlíðinni. ekkert betra til að lífga upp á daginn en stuttur hádegisdráttur. verst hvað það morar allt í kynvillingum og unglingi þarna á daginn. þeir voru nú samt ægilega hressir strákarnir í næstu laut, sjáum til hvort ekki býðst ævintýri þar síðar. ég ætla að ráða viðhaldið sem garðyrkjumann til að sinna mikilvægustu garðstörfunum. eiginlega ætti ég samt að fá mér sundlaug í garðinn, það ku vera miklu fínna að vera með "pool boy" en garðyrkjumann hjá heldri konum þessa dagana. vona bara að eiginmaðurinn komist ekki að þessu með hundinn.
eftir vinnu fer ég og hitti lýtalækninn, ekki veitir af að fara að blása aftur í varirnar, bótoxa ennið og skafa aðeins af lærunum. óþolandi hvað þetta er fljótt að safnast upp aftur, og ekki vænlegt þegar maður heldur úti garðyrkjumanni og sundlaugarstrák. tala nú ekki um ef ég ætla að fara að melda mig við kynvillingana, þeir eru víst svo agalega mikið fyrir útlitið. | fangor 12:57
miðvikudagur, september 24, 2003
skrifleti á hæsta stigi hrjáir fangor þessa dagana. svosem ekki mikið að gerast utan vinnu og hversdagslegra athafna, sem leiðir til skrifblokkar. enda fátt leiðinlegra en að lesa um hversdagsleik annara.
öldungis óvíst reyndar hvort skrifgleði lifnar á ný ef eitthvað markvert gerist. er ekki ennþá búin að sætta mig fyllilega við að úthella einkalífi mínu yfir alheiminn. og ekki víst um að alheimurinn stæði samur eftir. sennilega er ég bara að samsinna náttúrunni sem koðnar hægt niður þessa dagana undan kulda og yfirvofandi vetri. hugsanalaufin falla hvert af öðru samhliða laufum trjánna við garðastrætið. mér finnst ekki gott að vera kalt. því síður finnst mér að slíkt ástand eigi rétt á sér næsta hálfa árið. svei því bara.
Your ideal costume is God! On someone else it might indicate a majorly freaky superiority complex, but you really *are* that cool. Plus it saves you from the dork factor inherent in most male costume choices, not to mention money. Girls (or boys) in chainmail will definitely want you sending them heavenly messages. You da man! Don't ever change.
mánudagur til mæðu. kvót helgarinnar: " ástin og húsmóðurhlutverkið togast á í brjósti mínu "
-ringulreið e. flosa ólafs
eða kannski ekki. spennandi verkefni framundan. kemst í náið samband við mína innri gyðju í magadansi í kvöld. les yfir örleikrit frá efnilegum leikhúsmanni seinnipartinn, stefni að því að sýna örleikrit fyrir hönd reykjavíkurdeildar lf í borgarleikhúsinu. (bara af því að mig langar á svið í borgó.) hef vanrækt rokkstjörnuhlutverkið allverulega upp á síðkastið og ætla að hefjast handa við það aftur.
þetta haust verður sennilega hið skemmtilegasta þar sem öll alter-egóin mín hafa nóg fyrir stafni. ég er að hugsa um að leyfa þeim að hafa yfirhöndina fram að jólum. beware, ye'all.
ég er enn að dást að henni evu. . hún er ein stórkostlegasta manneskja sem ég þekki. og af einhverjum ástæðum hitti ég hana allt of sjaldan. mánudagslesningin er tvímælalaust " lambakjöt í rúmið mitt" færslan hennar. ég gæti ekki verið meira sammála.:þ
fallin er johnny cash. vér minnumst hans með mínútu þögn.
þar sem laugardagsveldið verður helgað stórmyndinni rhps er við hæfi að byrja kynjabrengl helgarinnar á nasa í kvöld þar sem fram fer keppni um dragdrottningu íslands, eða hvað ?
og á meðan ég man: þetta er skemmtilegt. alltaf gaman að fá nýja gesti.
lýsi eftir almennri geðheilsu. virðist hafa tapað þeirri litlu sem ég hafði. | fangor 13:56
þriðjudagur, september 09, 2003
..fangor stendur í stríði við netþjóna heimsins. einhverjum virðist í nöp við að ég hafi aðgang að internetinu.
grimms hjá leikfélagi kópavogs er stórkostleg sýning. það eru 2 sýningar eftir næsta laugardag, ég ætla með fríðu föruneyti á sýningu kl.2. önnur sýning er um kvöldið. ég hvet alla til að sjá þessa sýningu, þetta er síðasti sjéns!
stórskemmtilegt partý um helgina eins og heyra má.
vikan hjá mér verður hrein geðveiki, og ekki líklegt að ég verði mikið til bloggs. hér snýst allt í hringi, er ýmist upprétt eða á haus. þeir sem vilja gera líf mitt léttara endilega sendi mér skemmtimeil. ég hef uþb. 30 sek. á hverjum klukkutíma til að kíkja yfir hann..:þ
annars er lífið gott. leikur við mig. og ég ekki dottin niður í hið árlega haustþunglyndi ennþá. jibbí! | fangor 08:36