það er ekki seinna vænna en að finna upp á einhverju sniðugu áður en haustdrunginn hellist yfir af fullum þunga.
ég skaust því út í hádeginu og átti heitan ástarfund með viðhaldinu í öskuhlíðinni. ekkert betra til að lífga upp á daginn en stuttur hádegisdráttur. verst hvað það morar allt í kynvillingum og unglingi þarna á daginn. þeir voru nú samt ægilega hressir strákarnir í næstu laut, sjáum til hvort ekki býðst ævintýri þar síðar. ég ætla að ráða viðhaldið sem garðyrkjumann til að sinna mikilvægustu garðstörfunum. eiginlega ætti ég samt að fá mér sundlaug í garðinn, það ku vera miklu fínna að vera með "pool boy" en garðyrkjumann hjá heldri konum þessa dagana. vona bara að eiginmaðurinn komist ekki að þessu með hundinn.
eftir vinnu fer ég og hitti lýtalækninn, ekki veitir af að fara að blása aftur í varirnar, bótoxa ennið og skafa aðeins af lærunum. óþolandi hvað þetta er fljótt að safnast upp aftur, og ekki vænlegt þegar maður heldur úti garðyrkjumanni og sundlaugarstrák. tala nú ekki um ef ég ætla að fara að melda mig við kynvillingana, þeir eru víst svo agalega mikið fyrir útlitið. | fangor 12:57