vel heppnuð lungahátíð að baki, frábær tónleikaferð til vestfjarða og tónleikar með færeysku félögunum mínum afstaðnir. ferð til færeyja á planinu, heiðingjarnir og hraun fara saman til að sigra heiminn. á fimmtudagskvöldið leggjum við kisi í langferð austur á seyðisfjörð, jón geir mætir á föstudeginum og upphefst þá matarorgía sem standa mun í viku.....*smjatt*
annars er of mikið að gera til að ég geti skrifað, skellum inn tilgangsleysi til skemmtunar í staðin:
eftir 2.tíma verð ég komin í frí, fer heim til að pakka og þrífa, á morgun verð ég svo í hringiðunni á lunga með öllu skemmtilega fólkinu. hlakka mikið til. ef einhverja langar í ferðalag um helgina er mikið um að vera á seyðisfirði um helgina, uppskeruhátíð, stórtónleikar og ball. auk þess sem það verður 25+ stiga hiti. (samkvæmt pöntun) það verður hins vegar þoka hjá ástþóri í færeyjum (samkvæmt hefðinni, og afþví að ég fékk ekki að fara með sem sérlegur túlkur og verndari...) rakst á sérlega upplífgandi auglýsingu á forsíðu mbl.is, ekki seinna vænna að gera ráðstafanir í tíma, gaman að sjá svona þegar maður er á leiðinni í ferðalag. annars bið ég landsmenn alla vel að lifa, og vonast til að sjá einhver ný andlit á seyðis... jibbí,skibbí, allir út að leika!! | fangor 19:50
mánudagur, júlí 12, 2004
jahér, allt í einu kominn 12. júlí og mér auðvitað snarhætt að leiðast. viðburðarrík ferð vestur á strandir, enn eina ferðina tókst okkur hjónunum að lokka með okkur einvalalið, sem heillaðist upp úr skónum af svæðinu. vel af sér vikið það. ekki klikkaði skemmtanin heldur, tanka-og brekkusöngur með öllu tilheyrandi. vann kúlkeppni djúpuvíkur þar sem ég bestaði vestmanneyskan brekkusöngvara í færeyskum popplögum og framburði...:þ
var grasekkja síðustu 4 dagana, eyddi meirihluta þeirra í að sofa. á miðvikudaginn held ég austur á seyðisfjörð, á lunga 4. árið í röð. hlakka til. vonast til að fá veður með eindæmum gott og aflabrögð yfir meðallagi. | fangor 18:51