tónleikar með heiðu og heiðingjunum í kvöld á vídalín. þeir sem vilja mæta mér til samlætis endilega hafa samband seinnipart, fer í kaffi eftir vinnu, sit á unganum og sötra kaffi. | fangor 12:34
fimmtudagur, nóvember 27, 2003
fangor hefur snúið aftur úr sveitasælunni.
hefst nú jólavertíð, fyrsta jólasukkið í kvöld, jólaboð eddu-miðlunar. jpv annað kvöld, vonandi fleiri sem bjóða bóksölum upp á drukk og meððí fyrir jólin...
árstíðarbundnar geðbólgur létu á sér kræla, en voru kveðnar niður með harðfylgni og aðstoð góðs fólks.
bjart framundan. og alveg að koma jól.... | fangor 12:39
laugardagur, nóvember 22, 2003
sveitasæla á austurlandi. stefnt í litla kósíhúsið á seyðirsfirði seinnipartinn. kaffi og kósíheit í eldhúsinu hjá mömmu.
á meðan beðið er eftir jólunum er hér félagsskapur sem við eigum efalaust mikið að þakka.
fangor-í jólaskapi. (og ég veit að það er ekki kominn fyrsti des, en whattahey...) | fangor 12:16
miðvikudagur, nóvember 19, 2003
í kvöld verða fystu tónleikar jóns geirs með heiðingjunum. þeir eru á 22, og þau stíga á svið um 11. leytið. fangor óskar hér með eftir félagsskap, geri ráð fyrir að mæta milli 10 og 11 einhverntíman.
ekkert markvert í farvatninu í dag. jólin nálgast óðum, og í fyrsta skipti í ca 15 ár er ég ekki að fara í merkileg próf fyrir jólin. það er svolítið óþægileg tilfinning að fylgjast með öllum sem eru að læra, og vera ekki með. mér finnst að ég sé að svíkjast um. eða missa af einhverju. fékk námsfráhvörf í síðustu viku og las heimildir fyrir verðandi ba-ritgerð, en það dugði ekki til að koma mér í þetta stresskennda-tilhlökkunar-jólaskap sem fylgir því að vera námsmaður. hef í staðin hugsað mér að láta gamla drauma rætast of undirbúa jólin heima hjá mér í góðu tómi. baka kannski? skrifa jólakort?
hana nú. mánudagur skollinn á. að mér forspurðri. hneisa, hneisa segi ég!
eftir sérlega áhugaverðan eftirmiðdag hjá kisa hef ég komist að mér finnst skemmtilegt að vera iðnaðarmaður. það er gaman að plokka upp gamla gólfdúka með skrúfjárni og velta fyrir sér hvernig parketið á að snúa. svo er ég með sár á hnúunum og allt. gott búst í karlmennskuelementin, kvenlegurnar hafa verið eitthvað lausar síðustu vikurnar.
annars virðist almenn heilastarfsemi í sögulegu lágmarki, og grunar mig að einhver annar sé að nota stærstan hluta heilafrumna minna. vill sá hinn sami náðarsamlegast gefa sig fram hið snarasta. það er nú alveg lágmark að láta vita hvað er verið að nota mann í. það gæti líka verið einkar áhugavert að deila heilastarfsemi með einhverjum öðrum í smá tíma. verður kannski til þess að nýjar hugmyndir og viðhorf líta dagsins ljós. ergó: sá sem er að nota hugsanafrumurnar mínar, vinsamlegast skila.
eða amk. leyfa mér að vera með!
fangor-með hugsanahurðirnar af hjörunum, kvenlegurnar í lamasessi -iðnaðarmaður in making | fangor 12:37
upp er risinn nýr og betri fangor, 3 örum ríkari og nokkrum aukavefmyndunum færri. húrra fyrir því.
í þessari sjúkralegu hef ég komist að eftirfarandi niðurstöðum:
a) ég á bestu vini í heimi. uppáhalds kisinn minn kom og hjúkraði mér meðan maðurinn minn brá sér í stúdíó. skotta, halldóra , snorgill og ásta litu við og sáu mér fyrir félagsskap, súkkulaði og skemmtun. erin sendi mér blóm. og hún býr í frakklandi.
takk fyrir mig, ég elska ykkur öll, þið eruð fólkið sem bjargar heiminum.
b) það er leiðinlegt að vera veikur til lengdar.
c) ég þakka fyrir að ég er ekki með neina alvarlega sjúkdóma og þarf ekki að haga lífi mínu eftir því.
d) ég er hopelss kaffihúsabóhem. ég elska að sitja á kaffihúsum og spjalla um allt og ekkert við vini mína. ég mun því stunda þetta áhugamál mitt af krafti næstu daga, með þeim sem nenna.