svo varð barnið tveggja ára, byrjaði á leikskóla og jörðin skalf. vonum að það viti á gott. eiginmaðurinn yfirgefur okkur mæðgur yfir helgina til að spila fyrir patreksfirðinga. það verður án efa athyglivert. | fangor 20:40
þriðjudagur, maí 20, 2008
sýningin á gilitrutt hlaut mikið lof eftir föstudagskvöldið. leikarar enda í miklu stuði og stóðu sig frábærlega. ég er afskaplega montin mínu fólki en afrekaði það hins vegar að missa út lykilorð í þætti sem ég átti að eiga örlítið innslag í. ég átti að segja eitt orð í lok þáttar og missti af kjúinu. sem væri svosem í lagi ef það hefði ekki verið aðalatriðið, það sem gerði þáttinn. svo. ekki verður á allt kosið. en það er búið að biðja okkur um aukasýningu af gilitrutt. skvííí...!
engilbarnið verður tveggja ára á föstudag. jæks. mér finnst hún hafa fæðst fyrir nokkrum mánuðum síðan. | fangor 22:32
þriðjudagur, maí 06, 2008
það er dumbungur í veðrinu en sama verður ekki sagt um gilitruttarana mína. baldur beilaði en í staðinn kom eðaldrengurinn loftur inn af krafti. þá vantar bara hjalta og svavar til að hraunliðar allir komi saman á leiksviðinu. stefni að því að ná þeim öllum inn í næsta stykki. skrifi nú hver sem betur getur, stuttverk fyrir 6.karlmenn óskast takk.
við sýnum næsta þriðjudag í kjallaranum góða, önnur sýning er föstudagskvöldið eftir. 13 og 16 maí nánar tiltekið. ég vonast til að sjá sem flesta.
svo kemur hraunplatan út réttstrax. útgáfutónleikar 16 júní. jibbíkóla. verður þar komin afmælis- fermingar- skírnar- brúðkaups- jóla og tækifærisgjöf ársins. heppilegt það... | fangor 21:40