sérstaklega skemmtilegur siður hjá bretunum á svæðinu að fara í bjór og grill niður á strönd á jóladag. það voru nokkur hundruð manns með jólahúfurnar að hafa það huggulegt enda hitastigið yfir öðrum tug. við létum okkur auðvitað ekki vanta enda við jón geir löngu búin að viðurkenna fyrir okkur að innst inni erum við miðaldra bretar á eftirlaunum. vona að þið hafið það gott í hríðinni á íslandi, ég sakna veðursins ekki neitt. | fangor 11:19
mánudagur, desember 24, 2007
Kæru vinir
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum fyrir allar ánægjustundirnar sem við höfum fengið að deila með ykkur á árinu og hlökkum til að hitta ykkur eftir hátíðarnar. Farsæld og gleði fylgi ykkur inn í nýtt ár.
Live long and prosper;
Nanna, Jón Geir og Úlfhildur Stefanía | fangor 09:08