fangor flúði til netheima


skrítna fólkið:

hr. muzak
snorgill
skotta
sigga lára
siggadís
loki
jódís
heiða skúla
bróðir minn í fjarskanum
rósa elísabet
maría mágkona
varrius
gambrinn
eva
yfirnorn ásta
tröllatíkin
áslaug
gummi erlings
gben
þrási metal
valkyrjan fyrir vestan
breki
júlljúll

hljómsveitirnar mínar:

hraun
ampop
hálfvitarnir

fluguveggurinn:

siggi pönk
stebbi páls
pallih
matarkonan
ari páll og lilja
kiddi
davíð þór

skemmtilegt:

nornabúðin
foreyska poppsidan
baggalútur
nornaklúbburinn naflaló
leikir
allur heimsins matur
wulff morgenthaler
nördadót
hugleikur
athyglisýkin

letihaugar:

eðlukonan dísa
guðfinna
halla
hæfileikarinn
raritet
nornirnar






eldri skrif:

 


mánudagur, júní 27, 2005

 
viðburðarrík helgi að baki. rannveig og kjartan giftu sig með sóma í þorlákshöfn á föstudaginn. athöfnin falleg og veislan prýðileg eins og við var að búast. ég tróð mér á svið með hraun og skemmti mér hið besta. við eyddum nóttinni það í fellihýsi á tjaldstæði þeirra þollara og það rigndi eins og hellt væri úr fötu. ég barðist alla nóttina við löngun mína til að klifra yfir girðinguna og stelast í sund að gömlum sið. gerði það ekki og tel það til marks um ellimörk og almennan aumingjaskap.

á laugardaginn fórum við hjónakornin í heimsókn til ástu í sumarbústað á laugarvatnssvæðinu, sátum við 4. mann í úrhellisrigningu í heitum potti. jg tognaði í öxlinni og var hálf lamaður en lét það ekki aftra sér frá því að spila á snúllabar um kvöldið. þar kom ég mér fyrir aftarlega á sviðinu bak við hátalarabox og spilaði á slagvverk og raddaði það sem ég kunni. uppskar komment frá áströlskum sjálfboðaliða: " why do they keep her in the back? she's not that ugly" og ástarjátningar frá pólskum verkamanni sem sá svavar ekki í friði. eftir athyglivert gigg keyrðum við aftur í bústað og sátum í pottinum fram undir 7 að morgni. á sunnudaginn stoppuðum við á laugarvatni, við gamla gufubaðið þar sem litla hraun flutti nokkur lög í blíðskaparveðri. keyrðum heim, stoppuðum í eden og borðuðum ís. ið vorum komin heim um áttaleytið. við sofnuðum bæði eins og við hefðum verið skotin. klukkan átta. ellimörkin aftur.

helgin var afskaplega indæl. og allt það. en mig er farið að langa í frí þar sem ég þarf ekki að gera neitt skipulagt allan tímann. það er nefnilega ekki frí ef maður þarf að vera á ákveðnum stöðum að gera eitthvað ákveðið eftir klukkunni allan tímann. það hljómar svona meira eins og vinna.

|



þriðjudagur, júní 21, 2005

 
ég er enn að melta langhund um ferðalagið. reyni að setjast við á morgun. er ennþá í hálfgerðu kulda/hormóna/kattasöknuðarsjokki og þarf að taka mig saman í andlitinu. líkaminn hafnaði óléttuhugmyndum alfarið og verða næstu tilraunir gerðar í ágúst

á meðan hef ég hugsað mér að bjóða upp á þjónustu sem ég held vanti í höfuðborgina, hundaviðrun fyrir upptekið fólk. hef grun um að hér leynist margir voffar sem leiðist á daginn og þurfa að komast í labbitúr meðan eigandinn er í vinnu. ég þarf að hreyfa mig og koma mér í nothæft form, ég hef afskaplega gaman að hundum en hef ekki fengið mér slíkan akkúrat sökum þess að þeir þurfa svo mikla ummönnun ef þeir fá ekki að hlaupa lausir hluta úr degi. ég sé því kjörið tækifæri til líkams- og sálarræktar í leiðinni. ef þið þekkið einhvern sem þarf að láta viðra voffa endilega látið mig vita, ég tek það að mér gegn vægu gjaldi. einnig get ég gefið kisum og klappað meðan sambýlingar fara í sumarfrí. tökum eftir því; hundaeigendur, kattasambýlingar..:þ

|



þriðjudagur, júní 14, 2005

 
vid erum enn a lifi, brj'alad ad gera og eg hef ekki nennt ad skrifa pistla ur ferdinni. skrifa langhund thegar heim er komid. ferdin hefur gengid framar vonum, svona hljomsveitarlega sed.?br?
thad slaer storum skugga a ferdina ad fallegasta kisa i heimi do medan vid vorum i burtu, hrima litla veiktist svo illa ad hun hafdi thad ekki af. hennar verdur sart saknad og thad verdur undarlegt ad koma aftur heim og finna enga hrimukisu. eg kem aftur morguninn 17 ad eg held, jg kemur tha 18. eda 16 og 17. thad kemur i ljos.

|



fimmtudagur, júní 02, 2005

 
chicken payback

ef þetta er ekki gleðilegasta tónlistarmyndband sem ég hef heyrt/séð lengi veit ég ekki hvað. fylgið linknum að sjónvarpinu og lagið er í efstu blöðrunni, smá gestaþraut fyrir helgina. hljómsveitin the bees, gerið svo vel, haldin verður keppni í chicken payback við fyrsta tækifæri!

|



miðvikudagur, júní 01, 2005

 
hér átti ekki að verða óléttublogg. vil samt koma dálitlu á framfæri til að fyrirbyggja allan misskilning:

elsku stelpur mínar:

ég vil ekki á nokkur hátt að draga úr mikilvægi þess að hafa spítala við hendina þegar eitthvað kemur upp á við barnsfæðingar. ég virði fullkomlega þær konur sem kjósa að fara á spítala til að eiga sín börn, og skil vel að flestum þyki það öruggara. ég sjálf ætla að skrá mig í mfs-þjónustuna, og gæti alveg hugsað mér að eiga í hreiðrinu sem er hugsað sem millibil við heimili og sjúkrahús. það er hins vegar ekki hægt að stóla á að það verði laust þegar minn tími kemur, og þá þyrfti ég að hokra á fæðingarstofu landspítalans sem er ekki beint aðlaðandi, á deild sem er undirmönnuð og full af stressuðu starfsfólki sem hefur ekki tíma til að sinna fólki eins og það þarf á að halda og fer af sinni vakt eftir klukkunni. þar af leiðir að fæðandi konur verða oft stressaðar sjálfar og upplifa óþægindi sem þær væru alveg lausar við heima hjá sér með ljósmóður sem er til staðar fyrir þær allan tímann.
ef eitthvað lítur óeðlilega út er manni húrrað upp á spítala hvort eð er. tíminn sem það tæki mig að komast á sjúkráhúsið heima frá mér er ca 10.mínútur. á þeim tíma yrði búið að undirbúa allt á deildinni fyrir komu mína og læknarnir taka við. það er sirka sá tími sem konur þurfa að bíða á deildinni hvort eð er ef eitthvað kemur upp á meðan verið er að undirbúa skurðstofur og annað slíkt.

það sem ég vildi benda á er að við höfum val. konur eru jú hannaðar til þess að fæða börn, misvel að vísu. ég er alls ekki haldin neinni fæðingarrómantík, ég tel bara að auðveldara sé að hafa stjórn á aðstæðum ef fólk er í sínu umhverfi með góða aðstoð. ég virði skoðanir allra annara á því sem þeir telja best fyrir sig. ég ætla að stefna á heimafæðingu. ekkert víst að það geti gengið. kannski skipti ég um skoðun og fer í hreiðrið. það bara kemur í ljós.

ég hef ekki fleiri orð það.

|



Powered By Blogger.
Weblog Commenting by HaloScan.com