ég er að fara til london á miðvikudaginn. er byrjuð að smyrja nesti... | fangor 21:41
þriðjudagur, október 14, 2008
er ekki allt í lagi? athugasemd MEÐ? um. ég skammast mín. það er morgunljóst að ég þarf að auka samskipti mín við fólk með þroskaða málvitund. strax! | fangor 20:35
laugardagur, október 11, 2008
þetta er besta hugmynd sem ég hef heyrt lengi! sérstaklega gladdi mig þessi athugasemd með meinta evróvisjón ágirnd ástrala. | fangor 16:37
mánudagur, október 06, 2008
ég er að hugsa um að leggjast í híði og vonast til þess að efnahagsástandið lagist á meðan. mér þykir óþarfi að liggja með kvíðahnút í maganum yfir einhverju sem ég fæ engu um ráðið, en samt sem áður er ég með gallbragð í munninum og þori varla að líta í blöðin eða horfa á fréttirnar. best að finna sér eitthvað til að dreifa huganum. langar einhvern að spila við kertaljós? | fangor 18:31