ég er að hugsa um að leggjast í híði og vonast til þess að efnahagsástandið lagist á meðan. mér þykir óþarfi að liggja með kvíðahnút í maganum yfir einhverju sem ég fæ engu um ráðið, en samt sem áður er ég með gallbragð í munninum og þori varla að líta í blöðin eða horfa á fréttirnar. best að finna sér eitthvað til að dreifa huganum. langar einhvern að spila við kertaljós? | fangor 18:31