haustpest hefur herjað á heimilið síðustu daga, við jg höfum snýtt okkur í kross en litli grís hefur verið hin hressasta, 7-9-13. æfingar eru komnar á fullt fyrir afmælisstuttverkadagskránna sem verður í lok október í hafnarhúsinu og ég hef verið að halda utan um. einvalalið leikstjóra og leikara sameinast um að sýna 12 flunkunýja leikþætti þar sem tónlistarflutningur verður í, með og utanum. það verður gaman. annars er mest lítið að frétta. | fangor 19:53
laugardagur, september 13, 2008
hver átti að prófarkalesa mbl.is í dag? | fangor 20:57