foreldrar mínir ákváðu að heimsækja frændur vora færeyinga og stíga ólafsvökudans. eiginmaðurinn stakk af til að taka upp nýja plötu við þrísktiklu og heimsækja pólland í leiðinni ( jú mikið rétt, pólland er þarna rétt ofan við þrístiklu ) svo hann geti orðið fræg og rík rokkstjarna. á meðan ætla ég að mála eldhús, sjónvarpsherbergi og tilfallandi veggi á æskuheimilinu. áfram ég! | fangor 10:55
gvuðáhimnum klukkan er orðin 25.júlí. sumarið er að verða búið. það er alveg með ólíkindum. ég verð þrítug eftir allt of stuttan tíma. ( og já, það verður partý þegar ég kem heim. skipulagning er vel þegin ) | fangor 20:20
fimmtudagur, júlí 20, 2006
þegar ég verð stór ætla ég að vera 130 kílóa blökkukona og syngja gospel.
ég er kominn í gospelkór en kílóin þokast heldur niður á við.
í höfuðborginni er farið að rigna eldi og brennisteini. af því tilefni pakka ég nauðsynjahlutum fjölskyldunnar niður í töskur og sigli austur á land um borð í ríkiskadilakk foreldra minna. ég kem aftur í lok ágúst. jg verður á þvælingi um verslunarmannahelgina, pólland-reykjavík en við úlfhildur stefnum að okkar eigins útihátíð á seyðisfirði á meðan. ef fólk á ferð um austurland má endilega hafa samband, við bjóðum upp á kaffi og jafnvel pönnukökur ef vel liggur á okkur.
geri ráð fyrir að færslur verði strjálar þar sem athvarf mitt á seyðisfirði er netlaust. og símalaust. sem er dásamlegt. samband má hafa í gegn um gsm-símtæki vor ef nauðsyn krefur. | fangor 11:03
þriðjudagur, júlí 11, 2006
tók örlítið til í hlekkjasafninu, dró í dilka eftir dugnaði og bætti við fólki sem hefur lengi átt heima hér en ég ekki haft rænu á að bæta við, s.s jódísi, júllajúll og birni margeiri. einhverjir urðu undir fallexinni og fluguveggurinn brreyttist örlítið.
snorri kemur í heimsókn í dag, jibbí ! | fangor 10:24
mánudagur, júlí 10, 2006
skemmtileg ferð til vestfjarða að baki, skemmtilegt brúðkaup hjá tuma og heiðu. brúðurin var hrífandi fögur í ömmukjólnum og tumarnir hinir sætustu. úlfhildur hegðaði sér eins og engill, er búin að læra þann góða sið að sofa í kirkju og hvíla sig í veislum.
við verðum heima fram á föstudag ef einhver vill heimsækja okkur. | fangor 19:20
mánudagur, júlí 03, 2006
í sveitinni má finna kraftbirtingarhljóm guðdómsins. þeir sem þreyja þorrann í höfuðborgarómyndinni eiga alla mína samúð. á meðan jg fer og kennir siglfirskum börnum að berja rusl keyrum við úlfhildur í bæinn, stoppum í einn og hálfan dag, fljúgum vestur í brúðkaup og keyrum/siglum aftur í bæinn 10. júlí. við dveljum í höfuðborginni fram á föstudag og keyrum þá aftur austur. finnist einhverjum dálítið öfgakennt að drösla 6 vikna gömlu barni um 2000 kílómetra leið til að fara í brúðkaup sem það verður ekki vart við þá er ég sama sinnis. flokkast eiginlega bara undir geðveiki. en svo verðum við um kyrrt á austurlandinu. nýjar myndir af úlfhildi verða settar inn fyrir helgi vonandi. hún stækkar og fríkkar með hverjum deginum og heldur sig ennþá við að sofa á næturnar. hah!