úlfhildur er ennþá lasin. reynist vera með einhverna óskilgreinda veirusýkingu en ekki mislingabróður. fæ nánar úr því skorið á morgun ef hún verður ennþá með hita. sem ég vona að hún verði ekki. þarf að komast til vinnu á morgun og þess utan erum við jg með stompnámskeið milli 5-7 . leikstjórnarnámskeið er í fullum gangi og airwaves næstu helgi. einhvernvegin virðist alltaf allt þurfa að gerast á sama tíma og maður kemst ekki yfir neitt af viti. húsið skítugt, þvottur að safnast upp....aaargh, mig vantar ofurkonustyrk í ca.viku... | fangor 21:41
sunnudagur, október 14, 2007
litligrís er búin að vera lasin í viku. með 40 stiga hita nánast upp á hvern dag og svo loksins þegar hann lækkaði aðeins fékk hún útbrot á ennið, magann og bakið. fékk úrskurð um að hún væri með eitthvað sem heitir mislingabróðir. ofan í það er hún svo í fyrsta skipti komin með í eyrun. hún er nú samt bara nokkuð hress miðað við aðstæður. mun hressari með aðstæður en foreldrarnir allavega. vonast til að þetta hverfi allt saman á næstu dögum. | fangor 21:24
fimmtudagur, október 11, 2007
sjálfumglaði skipulagsnefndarslugsinn sem borgarstjóri? annar reykjavíkurlisti af því að allt gekk svo vel síðast? hvað ætli það komi til með að kosta að endurskipuleggja allt borgarbatteríið og kynna það fyrir íbúunum hver fær að ráða hverju í þetta skiptið? ojbjakkbarasta. ég hata strumpa. | fangor 18:59
föstudagur, október 05, 2007
viðburðarrík vika að baki. ég byrjaði að vinna sem undirborgaður hugsjónastarfsmaður á mánudaginn og líkar vel. eyddi fyrstu dögunum í að læra að þekkja 20 nöfn með tilheyrandi karakterum og var síðan beðin um að taka að mér annan hóp í tvær vikur vegna veikinda sem þýddi að í dag þurfti ég að læra 20 í viðbót, snarlega. vonast til að muna þau ennþá á mánudaginn. kvöldin hafa svo farið í æfingar fyrir margt smátt. þær hafa gengið ljómandi vel enda valdir stórleikarar í hverju rúmi. hrós vikunnar fær anna begga fyrir að rifja upp fjóra þætti á örstuttum tíma og brillera í þeim öllum. fifferingar í borgarleikhúsinu sér svo ofurkonan puff mama um svo ég er hætt að örvænta vegna tækniútfærslna. rýmistútfærslur-smýmisútfærslur. dagskráin hefst klukkan tvö á morgun í borgarleikhúsinu og verður búin klukkan 6, þeir sem misstu einhverra hluta vegna af öllum einþáttungadagskránum okkar í kjallaranum síðasta vetur geta notað tækifærið og séð þá flesta á einu bretti ásamt nokkrum þáttum frá öðrum félögum á morgun. það kostar bara þúsundkall inn sem er gjafverð fyrir þriggja tíma leikhúsdagskrá. ég leikstýri tveimur þáttum og jón geir leikur í einum. okkur þætti vænt um að sjá einhverja úr vinahópnum (aðra en þá sem eru með okkur í leikfélaginu..:Þ) dagskráin er með tveimur hléum og einhverjum óvæntum skemmtiatriðum inn á milli. svo verður auðvitað blásið til veislu eftirá. ótrúlegt en satt.. | fangor 22:00