við erum komin heim. það er bara afskaplega notalegt. við komum akkúrat passlega til að skoða bæjarhátíð mosfellinga og erum nýkomin af ormsteitinu á héraði. ég verð nú að segja að ormsteitið ber höfuð og herðar yfir þessa afsökun fyrir bæjarhátíð hér. tveggja daga dagskrá og flest atriði einstaklega óspennandi. hefði verið gaman að sjá ungliða leikfélags mosó spreyta sig á ofviðrinu en ég missti af því . skemmtilegt hefði líka verið að fara á markað í mosfellsdal ef hann hefði ekki verið búinn 2 tímum fyrir auglýstan lokunartíma. hnuss bara. áfram ormsteiti. hefði verið lengur fyrir austan og gætt mér á heilgrilluðum hreindýrstarfi hefði jg ekki þurft að fara til vinnu. ef egilsstaðir geta haldið úti 10 daga festivali með toppdagskrá hlýtur að vera hægt að koma saman þolanlegri dagskrá í bæ af þessari stærðargráðu. þessi færsla var í boði nöldurhorns nönnu.
ábending til skipulagsyfirvalda í mosó: þar sem kaldakvísl og varmá renna saman hlýtur spottinn niður að sjó að heita volga... | fangor 21:13
miðvikudagur, ágúst 22, 2007
lausnin á vanda miðborgarinnar að fjarlægja kælinn úr vínbúðinni? afþví að ógæfumenn hafa ekki haldið þar til talsvert lengur en átvr hefur verið í lækjargötunni ? svo maður vitni nú í þjóðskáldið: kræst! | fangor 17:51
sunnudagur, ágúst 19, 2007
menningarnótt-smenningarnótt. hér skín sól í heiði og við erum að fara á tónleika með eivör í hallormsstaðaskógi á eftir. spennandi... | fangor 10:20
réttupphend sem eyddi mööörgum klukkutímum í svona dót. | fangor 12:36
miðvikudagur, ágúst 15, 2007
ég á ammælídag, ég á ammælídag, ég á ammælisjálf, ég á ammælídag.
húrra fyrir mér og baldri broddgelti sem deilir með mér deginum. | fangor 09:02
sunnudagur, ágúst 12, 2007
sumarið bara að verða búið. frábær leikferð að baki, tveggja vikna úthald. hrrrroðalega gaman. erfitt, vissulega þegar maður er ekki í þjálfun. óhætt að segja að ég sé orðin vel marineruð. sérstaklega gaman að fá að hafa viðkomu hjá Höllu á Selfossi eftir dramatíska nótt á Flúðum í óeinangruðu kofaskrifli þar sem leikhópurinn kúrði þétt saman til að halda á sér hita.
einn af hápunktum sumarsins öskjuferð með gunnari ben og samsetur á eftir. endurtakist við fyrsta tækifæri.
nánari útlistanir þegar ég hef tíma. | fangor 23:25