við erum komin heim. það er bara afskaplega notalegt. við komum akkúrat passlega til að skoða bæjarhátíð mosfellinga og erum nýkomin af ormsteitinu á héraði. ég verð nú að segja að ormsteitið ber höfuð og herðar yfir þessa afsökun fyrir bæjarhátíð hér. tveggja daga dagskrá og flest atriði einstaklega óspennandi. hefði verið gaman að sjá ungliða leikfélags mosó spreyta sig á ofviðrinu en ég missti af því . skemmtilegt hefði líka verið að fara á markað í mosfellsdal ef hann hefði ekki verið búinn 2 tímum fyrir auglýstan lokunartíma. hnuss bara. áfram ormsteiti. hefði verið lengur fyrir austan og gætt mér á heilgrilluðum hreindýrstarfi hefði jg ekki þurft að fara til vinnu. ef egilsstaðir geta haldið úti 10 daga festivali með toppdagskrá hlýtur að vera hægt að koma saman þolanlegri dagskrá í bæ af þessari stærðargráðu. þessi færsla var í boði nöldurhorns nönnu.
ábending til skipulagsyfirvalda í mosó: þar sem kaldakvísl og varmá renna saman hlýtur spottinn niður að sjó að heita volga... | fangor 21:13