eftir 2.tíma verð ég komin í frí, fer heim til að pakka og þrífa, á morgun verð ég svo í hringiðunni á lunga með öllu skemmtilega fólkinu. hlakka mikið til. ef einhverja langar í ferðalag um helgina er mikið um að vera á seyðisfirði um helgina, uppskeruhátíð, stórtónleikar og ball. auk þess sem það verður 25+ stiga hiti. (samkvæmt pöntun) það verður hins vegar þoka hjá ástþóri í færeyjum (samkvæmt hefðinni, og afþví að ég fékk ekki að fara með sem sérlegur túlkur og verndari...) rakst á sérlega upplífgandi auglýsingu á forsíðu mbl.is, ekki seinna vænna að gera ráðstafanir í tíma, gaman að sjá svona þegar maður er á leiðinni í ferðalag. annars bið ég landsmenn alla vel að lifa, og vonast til að sjá einhver ný andlit á seyðis... jibbí,skibbí, allir út að leika!! | fangor 19:50