jahér, allt í einu kominn 12. júlí og mér auðvitað snarhætt að leiðast. viðburðarrík ferð vestur á strandir, enn eina ferðina tókst okkur hjónunum að lokka með okkur einvalalið, sem heillaðist upp úr skónum af svæðinu. vel af sér vikið það. ekki klikkaði skemmtanin heldur, tanka-og brekkusöngur með öllu tilheyrandi. vann kúlkeppni djúpuvíkur þar sem ég bestaði vestmanneyskan brekkusöngvara í færeyskum popplögum og framburði...:þ
var grasekkja síðustu 4 dagana, eyddi meirihluta þeirra í að sofa. á miðvikudaginn held ég austur á seyðisfjörð, á lunga 4. árið í röð. hlakka til. vonast til að fá veður með eindæmum gott og aflabrögð yfir meðallagi. | fangor 18:51