mánudagur til mæðu. kvót helgarinnar: " ástin og húsmóðurhlutverkið togast á í brjósti mínu "
-ringulreið e. flosa ólafs
eða kannski ekki. spennandi verkefni framundan. kemst í náið samband við mína innri gyðju í magadansi í kvöld. les yfir örleikrit frá efnilegum leikhúsmanni seinnipartinn, stefni að því að sýna örleikrit fyrir hönd reykjavíkurdeildar lf í borgarleikhúsinu. (bara af því að mig langar á svið í borgó.) hef vanrækt rokkstjörnuhlutverkið allverulega upp á síðkastið og ætla að hefjast handa við það aftur.
þetta haust verður sennilega hið skemmtilegasta þar sem öll alter-egóin mín hafa nóg fyrir stafni. ég er að hugsa um að leyfa þeim að hafa yfirhöndina fram að jólum. beware, ye'all.
ég er enn að dást að henni evu. . hún er ein stórkostlegasta manneskja sem ég þekki. og af einhverjum ástæðum hitti ég hana allt of sjaldan. mánudagslesningin er tvímælalaust " lambakjöt í rúmið mitt" færslan hennar. ég gæti ekki verið meira sammála.:þ