við mæðgur höldum austur á bóginn komandi föstudagskvöld. jg verður einn í bænum í viku en kemur svo austur til okkar. þá helgina ætlum við hjónakornin reyndar að vera á áhugaverðustu útihátíð ársins; úlfaldanum, þar sem hraun ætla að spila þann 12.júlí. hún er haldin við mývatn og ætti að verða gaman. síðast þegar jg spilaði á mývetnskri útihátíð kviknaði í sviðinu. þeir sem eiga heimangengt ættu endilega að bregða sér í bíltúr. þó ekki væri nema til að koma með okkur í útilegu, svona hraun í hrauni stemmning...
fréttir vikunnar hljóta að teljast þær að svandís flytur sennilega heim í haust. húrra! | fangor 21:53