ég er upprisin!!! enda ekki seinna vænna. kominn föstudagur...:þ
síðustu dagar hafa liðið hjá á loðnu verkjalyfjaskýi, er búin að kynnast sófanum mínum afar náið. dásamlega fólkinu sem ég þekki færi ég bestu þakkir fyrir að koma og sitja hjá mér, elska ykkur öll.
ásta notaði tækifærið og laumaði
fyrstu 2. seríunum af buffy inn á mig, varnarlausa í verkjalyfjavímunni. síðustu tvö kvöld hafa því verið undirlögð af bestu skemmtan, vampýrur, múmíur, djöflar og alls kyns dót drepið í bland við sápuópersk ástarævintýr. dásamlegt alveg.
þó að ég sé risin úr rekkju er ekki þar með sagt að ég yfirgefi sófann alveg strax, í kvöld er idol-áhorf. hverjir vilja memm? | fangor 09:36