fín helgi. dagskráin í listasafninu gekk vel, og örleikritahátíðin í borgarleikhúsinu var stórkostleg. fullt af góðum stykkjum, nokkur frábær og ekkert hreinlega leiðinlegt eða illa flutt. sem má teljast gott þegar litið er til þess að sýnd voru 21 örleikrit alls staðar að.
við kisi stóðum okkur alveg með ágætum í skiptitónlistinni með snillingunum togga,ármanni, bjössa og snorra. ég vil að minnsta kosti halda því fram. einnig fékk ég það skemmtilega hlutverk 10 mínútum fyrir upphaf hátíðarinnar að kalla fram nöfn hvers verks fyrir sig. alltaf gott að muna eftir kynninum, skipulag hvað...:þ en annað skipulag var með ágætum. alveg hreint.
hamingjuóskir dagsins fær tumi mágur sem útskrifaðist um helgina og þykist merkilegri en ég fyrst hann er kominn með gráðu. hnuss. ég get líka alveg fengið mér gráðu. um leið og ég nenni....:þ | fangor 13:36