Viðburðarrík helgi að baki. það er sök sér þegar vinir manns verða þrítugir. búin að upplifa það nokkrum sinnum. en fertugir? úff.
skemmtilegasta fertugsafmæli sem ég hef farið í að baki, borðskálin var " guðjón, við samhryggjumst!" og annað eftir því....
í gær var sett nýtt met í leti og kósíheitum á vesturgötunni. mission dagsins var að standa ekki upp úr sófanum til að gera nokkuð af viti. það tókst. kúrði með heimilisfólki og fastagestum af mikilli innlifun..... 3 kisar og tveir bokkar í einni hrúgu, það er bara sætt. við héldum okkur við letiefnið með áhorfi á barnaefni síðasti dagur ásþórs á heimilinu, knúsaði hann bless í morgun. hans verður sárt saknað.