sumar, sumar, sumar og sól. verður ekki bara að taka síkrettið á þetta? mér áskotnaðist hjólhestur í dag. hjólaði um hverfið skríkjandi af kátínu og andaði að mér lyktinni af vorinu. hún var reyndar frekar daunill, það er bæði svína- og kjúklingabú hér í grendinni og þar var verið að lofta út. mætti ég þá biðja um fjósalyktina frá egilsstaðabúinu sem færði manni vorið fyrir austan. þrátt fyrir fnyk fyrir vitum ( skelfilega er þetta asnalegt orðalag, læt það halda sér) er umhverfið hér kjörið til útivistar hvers konar og ég sá í hillingum hjólaferðir um sveitina með litla grís aftaná. mig vantar barnastól fyrir hjólhest ef einhver lumar á slíkum í geymslunni.
úlfhildur er orðin ótrúlega stór og dugleg. í dag náði hún sér í blýant og bað um blað til að lita á. hún stóð við stofuborðið í smástund, kallaði svo í mig og sagði: "mamma, þetta er hvalurinn sem gleypti tralla". svo bað hún mig um að hringja í afa og ömmu svo hún gæti sýnt þeim myndina. þykir lógískt að fólk sjái í gegn um símann. langt síðan ég hef tekið tilgangsleysispróf: