við úlfhildur erum austur á landi hvar vorið er tíu dögum seinna á ferðinni en sunnanlands. aukafrídagur sem þurfti að nota og jg býr á fídbakka fram á morgundaginn svo við ákváðum að heimsækja ömmu og afa á meðan. nýja hraunplatan er sumsé að verða tilbúin og er væntanleg til landsins í byrjun júní ef áætlanir standast allar. sjö, níu, þrettán!
rakst á þennan skemmtilega hlekk hjá varríusi og stóðst ekki mátið. nú vill svo einkennilega til að við jg erum bæði fædd undir topplögum frá sir elton john. nánar tiltekið "island girl" hjá honum og "don't go breaking my heart" hjá mér. þetta getur nú tæpast verið tilviljun... | fangor 11:21