fangor leit inn á síðu beturokkog sá þar að hún furðaði sig á því hvers vegna enginn hefði talað við hana um bókina í bóksalaboði eddunnar.heh...tjah....fangor var einmitt að velta þessu fyrir sér þar sem hann sveif framhjá og brosti fallega til betu. Fangor er nefnilega sjentilmenni fram í fingurgóma og kunni ekki við að segja konunni hvað honum fannst bókin hennar skelfileg. hræðileg,hreint út sagt. hefði einhver gert stelpugreyinu greiða og ritstýrt henni aðeins hefði kannski verið hægt að segja að bókin væri a.m.k. skemmtileg aflestrar,þó innihaldslaus sé. en því er ekki að heilsa, svo bókin er sundurlaust röfl um fyllerí,ælur og slef. sem gæti verið gott efni, segi það ekki. en ...því miður. bara vond. fangor veit að margir voru á sömu skoðun, og sneyddu því snyrtilega framhjá betu litlu,með kurteislegu brosi.en svona er maður nú mikill ræfill, að segja það ekki bara hreint út.....eða kannski bara kurteis? | fangor 16:14