úff.....hér sit ég og skelf úr þynnku. hefði þurft að fara örlítið fyrr að sofa..þrítugsammælið sem ég fór í í gær var frábært. ég var næstum búin að gleyma hvað ég á skemmtilega vini. það er nú svona þegar fólk dreifir sér um allar jarðir. en almáttugur hvað þau eru nú dásamleg:Þ svandís mín fór til útlanda í morgun, vona að ferðin gangi vel krúttið mitt.
eyddi morgninum í smáralind með foreldrunum, og keypti jólagjafirnar mínar. einhvernveginn finnst manni þetta ekki alveg skemmtilegt, ég vil ekki vita hvað er í jólapökkunum mínum....en maður ætti nú svosem bara að vera glaður með að fá yfirhöfuð einhverjar jólagjafir, er það ekki.
skelfing hvað maður er pólitískt rétthugsandi svona þunnur. held reyndar að það sé ekki fyllilega runnið af mér ennþá..á örugglega eftir að sofna fram á lyklaborðið seinnipart.vinsamlegast, enginn kaupa bækur í dag, starfsmenn þurfa sinn svefn.....