hmmmmdídædí...vaknaði í morgun.óska mér innilega til hamingju með það.
fyrir þá sem vilja: hinir árlegu jólatónleikar borgardætra á næsta bar í kvöld. þar ætlar fangor að njóta ljúfra tóna, þeir sem vilja velkomnir með. endilega hafa samband seinnipart. annars hefur aldrei verið jafn líflegt í kommentakerfinu mínu, er það vel. hún kolbrún leit við, vertu velkomin. skotta er svefnlaus þessa dagana og fastagestirnir raritet, murta og fúlhildur eru alltaf í stuði.....vá. er ég að ná þessum séð og heyrt stíl alveg...sjáiði skemmtilega fólkið á heimasíðu fangors....tíhí. er í jólastuði. og ekki veitir af. það er þéttpökkuð dagskrá allan morgundaginn, útskrift, ,jólaball, út að borða, þrítugsafmæli. það verður gaman.... | fangor 09:55