jæja, afskaplega viðburðarrík og ánægjuleg helgi. fór á ágætis jólahlaðborð í skíðaskálanum í hveradölum. þar var allur matur hinn ágætasti, en fangor verður að lýsa yfir vanþóknun sinni á vínþjónum staðarins. einhverjum aula datt í hug að markaðssetja neuvou-vínin sem jólavín á íslandi. þvílíkt klúður.bara íslendingar myndu láta selja sér rauðvín sem ekki er einu sinni tilbúið, með jólamatnum. þarna sátum við sumsé, og blessaður þjóninn okkar byrjaði að hella Piat-nývíninu í glös. fangor og félagar skiluðu þessu sulli auðvitað umsvifalaust, og báðu um alvöru rauðvín. en ekki nóg með að okkur hafi verið boðið upp á sull-nývín, og það versta af þeim öllum helv.Piat, heldur selja þeir flöskuna á 3000 krónur!!! þrjúþúsund! þetta er er náttúrulega ekki heilbrigt, og ekki mönnum bjóðandi. skíðaskálinn fær því skamm vikunnar. gott ef ekki bara rasskell.
þá er glaum-og gleðilífi lokið í bili, fangor leggst í ritgerðarskrif og próflestur. lítið verður um blogg eða aðra tímasóun á meðan. vinsamlegast hafið mig afsakaðan. | fangor 13:21