monday,monday....þetta virðist ætla að verða önnur vikan sem samanstendur af mánudögum eingöngu.svei því. það eina sem lífgar upp á þessa þrálátu mánudagstilhneigingu viknanna fram að jólum eru tónleikarnir með nick cave í kvöld. sem gera þetta eiginlega að laugardagsvköldi.hmmm.laugardagskvöld til mánudagsmorguns...hvað ætli sæti læknirinn á nesinu segði um þetta?? er fangor haldinn dagvillu? hvar hafa dagar viku minnar skiptum sínum glatað?? dagvilltur, fínt orð.nýyrðasmíð par excellence...fangor svaf í tvo tíma í nótt og er skrítinn í hausnum.
Nick Cave í kvöld.....stilli mér upp fyrir framan broadway strax eftir vinnu. ekki vill maður sitja bak við súlu eða einhversstaðar þar sem hið öldungis hreint magnaða hljóðkerfi hússins nær ekki til.....kemur ekki til mála. | fangor 12:30