*yaaaaaaaawnnnn* sá skortur á þeim eiginleika að vakna meðan er dimmt náði nýjum hæðum í morgun. fangor fór að sofa um 11 leytið í gær. snemma.og svaf vært til um 8:30, þá skreiddist hann inn á bað, skrúfaði frá sturtunni og kom sér notalega fyrir.
og svaf. í sturtu. í 20 mínútur. mætti of seint í vinnuna.
er búinn að sjá út að þetta gengur tæplega lengur. ég þarf einfaldlega minn 16 tíma svefn þar til birtir á ný. vildi óska að einhver vildi gera tilraun: fangor bíður sig fram sem fyrsta tilraunamanninn sem leggst í hýði yfir vetrartímann, frá svona segjum nóvember og út mars. hugsið ykkur sparnaðinn fyrir þjóðfélagið. ekkert atvinnuleysi. enginn götumokstur. þeir sem vilja vera vakandi á þessu guðsvolaða skeri meðan ekki birtir er það svosem velkomið. en hinir geta tekið svona hýðisorlof, svipað og fæðingarorlof. þú átt rétt á svona 5, segjum, yfir starfsævina....ha, hömmm... einhver?? | fangor 10:23