fangor er ekki sofandi eða dáinn. bara voða, voða upptekinn. brjálað að gera í vinnu og námi, af einhverjum ástæðum virðast allir vilja kaupa sér námsbækurnar sínar strax. og ég sem hélt að fólk lærði af reynslunni með námsárunum í HÍ. en nei....læti eru þetta. fangor lofar bót og betrun um leið og hann hefur hent inn litlu shakespeare-ritgerðinni sinni á föstudag/laugardagsmorgun.
svo er líka menningarsjokk að vera kominn aftur í höfuðborgina, allt of mikill erill á öllu.
að auki er ég komin með ógeð á virkjanaumræðum. vinsamlegast, hætta takk. nóg komið. allt hefur verið sagt og rifist og mótmælt og landsvirkjun er að gera skítadjobb með ókláruðu umhverfismati og þar við situr. andmæli skipta engu, það er hvort eð er ekkert sem hinn almenni borgari getur gert í stöðunni, ef alcoa segir játakk sitjum við uppi með það, og ekki fer fráfarandi borgarstjóri að hindra álver. og vel að merkja, hef einnig fengið nóg af umræðu um Vinstri vorsól. foj, ullabjakk.