úfff....enn eina ferðina hefur helvítis kvefpestin náð yfirtökunum. fangor berst hatrammlega við hósta og hor. leit við í vinnu í dag, svona til málamynda og leysti af í mat. hef sennilega smitað restina af staffinu, og auk þess náð dágóðum hluta nemenda félagsvísinda-og heimspekideildar...hahahhaha....hefnd bitra bóksalans:)
nú það var ætlun mín að vitna hér í vísu eftir kunningja minn enter, en þar sem ég fæ ekki tölvuskrifli raritet með nokkru móti til að opna baggalút verð ég að sleppa því í bili.
ykkur sem heima sitjið bið ég vel að lifa í bili, ef einhver nennir að spila við mig og langar í sérdeilis þrálátt afbrigði af kvefi má viðkomandi gjarnan líta við á vesturgötunni..... fangor liggur inni morgundaginn líka.