hananú. hefur mér tekist að móðga svandísi. það var nú ekki ætlunin. ég endurtek: bara athyglissýki í mér. við hittumst vonandi fljótlega yfir kaffi..:)
það var mikið gaman í ammæli hr muzak á laugardaginn. vona að mér verði fyrirgefið að hafa ekki mætt í afmæli siggudísar. ég hef því miður ekki ennþá fundið heilastöðina sem gerir manni kleyft að vera á 2. stöðum í einu. sem er slæmt, fangor þyrfti akkúrat á slíkum hæfileika að halda núna, það myndi leysa flest mín vandamál á einu bretti. þá getur maður til dæmis verið í skólanum og vinnunni á sama tíma. sem er ákjósanlegt, miðað við samskiptin sem ég átti við einn kennara minn á föstudaginn. fangor hefur sjaldan orðið jafn reiður og þá. en það leystist allt saman. er efni í gott kaffispjall samt sem áður! eigi skal láta valta yfir sig af mönnum sem þjást af menntahroka og yfirlæti gagnvart nemendum sínum!!! svei því.
skal annars ekki vera með almennt bögg og skot á fólk í dag. fangor lofar að vera þægur.....í bili. | fangor 10:15