aumingja mikki. ég segi nú ekki annað. ég mælist til þess að heimurinn láti hann í friði, og leyfi honum að leika sér. það er ekki fallegt að stríða einfeldningum.
fangor gat ekki á sér setið að bauna aðeins á hinn róttækari arm kunningjahópsins í gær. það sem er merkilegt við þetta eru viðbögðin sem ég fæ við þessu skoti. sem eru þau sömu og fulltrúi vestfjarðanna hefur fengið við sínum tillögum. alltént-engin. þetta finnst fangor einkar athyglivert. ætli það sé kannski ekki svona einfalt að hrúga inn öllum þessum störfum í vistvænni ferðaþjónustu og hugarsmíðum ýmis konar? eða eru vestfirðir ekki náttúruparadís? (það er nú reyndar kárahnjúkasvæðið ekki heldur, ykkur að segja, þó að virkjun muni skemma ýmsar náttúruperlur þar í kring) eða eru kannski rök mótmælenda svo alfarið hugsjónatengd að þau virka ekki í praxis? eða er kannski miklu skemmtilegra að vera á móti heldur en byggja upp? eða er kannski bara allra skemmtilegast að geta gargað um gerræði og ólýðræðisleg vinnubrögð? en ekki að lyfta höndum til að gera hluti sem væru mesta " in your face" statement sem hægt væri að koma með?