þvílík snilldarhelgi. útskrift + ammæli raritetar var svo skemmtilegt!
fangor spilaði á trommur með verðandi eiginmanni og mági, söng með áslaugu og svabba. við settum upp örlitla skemmtidagskrá henni til heiðurs, flutningur fangors og félaga á baráttukvæðinu áfram stelpur verður sko lengi í minnum hafður ;Þ.
eftir það djömmuðum við bara og lékum undir fjöldasöng og djammi hjá skemmtilegu fjölskyldunni hennar raritetar. þvílíkt afbragðsfólk!
ég ætla að vona að brúðkaup okkar jóns verði svona skemmtilegt!
fangor og svabbi komust að því eftir miklar pælingar að sennilega hafi rauðvínið sem tengdó byrlaði okkur verið áfengt. í það minnsta vorum við svo sullfull og glöð að annað eins hefur varla sést, ég hef aldrei, aldrei séð svavar svona drukkinn....tíhí. en bragðið var gott, og það skilaði sínu meir en 100%. svo vel að fangor er ennþá svona nett þunnur.....:þ en á góðan hátt. bara svona andleg þynnka, og enn laumast fram sælubros þegar atriði kvöldsins rifjast upp.
sumsagt, hér situr lítill fangor með aulaglott á andlitinu og tístir...híhí..skemmtilegt...tíhí....trommtromm,syngj......hehe......raritet að dansa,tendó að dansa, allir að dansa og syngja....þkemmtilett......