ókei,ókei. ég skal hætta. búin að pirra svabba allverulega. vil síst að hann haldi að þetta sé einhver persónuleg árás á hann. ég elska svabba auðvitað afar heitt. en finnst hann svolítið vera að drukkna í hafi hugsjónanna. og þá er um að gera að koma smá ölduróti í gang, annaðhvort syndir maður eða sekkur.... annars allir að kommenta í gestabók kalksins, þar ríkir soddan agaleg ládeyða þessa daganna, og ekki veitir af skemmtilegum gestum. ræktin gekk nánast af fangor dauðum í gær. gat mig hvergi hreyft þegar ég vaknaði (seint :-( ) í morgun. en er þó til bóta að ég þarf að þyngja á stöngunum...híhí. fangor getur storkað þessum hulk sem allri eru að tala um þessa dagana. bara nokkrar vikur í viðbót, og vöðvarnir blómstra....hehe. annars hef ég komið upp umferðarmælingum um síðuna. hraðakstur bannaður :Þ . i know where u live... | fangor 14:05