*andvarp*. það var svosem auðvitað. lokabardaginn við tönnina verður ekki háður fyrr en í næstu viku. kemur upp úr dúrnum að fangor er með lengstu tannrætur sem tannsinn minn hefur séð, 22mm, hvorki meira né minna. á nettum konum eins og mér þýðir þetta að tannræturnar ná vel upp undir nef !
það er nú dáltið´rokk í því, ég get notað röntgenmyndirnar sem cover á fyrsta cd-inn minn.....sem verður þá auðvitað að heita tannrætur dauðans. eða hin langa rót....