í dag er föstudagur. það er ákaflega skemmtileg staðreynd. fangor fer í sushi-matarboð í kvöld. spennandi.
sigga lára hefur loksins verið samþykkt af hinum kröfuhörðu stjórnendum bloggers. það má þvi fylgjast með ævintýrum hennar á austurlandinu.
það er ljóst að egilsstaðir verða næsti rokkbær, heimkynni rokkstjarna eins og mín, dúkkulísanna og fleiri góðra sveita. svo er slára náttúrulega rithöfundur og leikritaskáld, þetta er allt að gerast.
fangor hrópaði og varð blautt&kalt ásamt öðrum byltingarsinnum og kommúnistum á lækjartorgi í gær. 100 rokkstig fyrir það. stóð fyrir aftan heiðu sem var með strákinn sinn í pólitísku uppeldi. tókst ekki að komast á forsíðu morgunblaðsins þrátt fyrir að vera með 5 ára gamalt ofursætt barn í fanginu sem hrópaði með af innlifun nálægðin við heiðu dugði heldur ekki. ég hefði þurft að finna palla klikka ekki á því næst!