þá er það bara að mæta á gaukinn um helgina í rokk gegn stríði. sé nú reyndar ekki fram á að ég troði upp, þar sem bandið mitt hefur ekki verið stofnað ennþá. nema auðvitað ég og blokkflautuleikari dauðans flytjum gjörning.....hmmmm.
en það skiptir nú ekki öll máli að troða upp, heldur að mæta og vera kúl. stefni að því að komast inn í hverjir voru hvar, það er góð byrjun. mig vantar reyndar spons á brúnkukrem, vonlaust að ætla að reyna að halda úti sólbrúnkusætu á eigin kostnað. set umbann minn í það.
þega því er lokið verð ég að dúkka upp í séð og heyrt, kynnast ásdísi rán og einhverjum þáttastjórnandanum á skjá1.
þá er bara að húkka upp stílista, ætli skjölli myndi taka mig að sér?
maður verður náttúrulega að hafa stíl, og glamúr. mæta á réttu staðina. politically correct er í tísku núna, svo fangor mætir á austurvöll kl. 17:30. á ég að mæta í rokkdressinu, eða spila mig sem "einn af fjöldanum" að mótmæla? svona "við erum öll jöfn að mótmæla" pæling? eða kannski vera með rauðan klút á hausnum eða eitthvað svona trix, sem sker sig aðeins út. eða bara að finna pál óskar og hanga við hann, myndavélaathyglin sem sá drengur fær er náttúrulega aðdáunarverð. og ég get kannski stolið smá.....:Þ