ágætis helgi alveg hreint. föstudagskvöld fór ég út að borða á caruso þar sem ég fékk góðan mat í kósi umhverfi en frekar slappa þjónustu.
laugardagsvköldið borðaði ég humarsúpu ástarinnar hjá tuma & heiðu, spiluðum við ástu, raritet, litla bróður og ragnheiði. það var skemmtilegt.
ég, ásta og ranveig héldum út að höstla. toppuðum allt með því að skella okkur á kaffi reykjavík og dansa við gamlar eurovisjón lummur, og áttum dansgólfið. húmorinn datt þó tiltölulega fljótt af því, svo þær stormuðu á 22, en ég heim í bælið, enda ekki nokkur karlmaður höstlvænlegri en minn eigin..:Þ
hef sett á stefnuskrá að koma mér upp á 22 næst þegar ég er í dansstuði. allt of langt síðan ég hef dansað eins og vindurinn einhversstaðar. það er bara eitthvað svo langt þarna upp á laugaveg sko.....
annars sit ég hér bryð pillurnar mínar svo kjálkinn á mér láti mig í friði. bölvuð tönnin reyndist náttúrulega vera andsetin, og hefur tekist að eitra út frá sér niður í bein. ég hef beðið samnornir mínar að magna upp krafta sína til að særa þetta niður í eitt skipti fyrir öll.