það var gaman á árshátíð. gaman að þykjast hjálpa til í barnaammli. (afrekaði að rífa niður ost á 2 pizzur. húrra fyrir mér) það var gaman að hitta áslaugu. það var gaman á moonbots.
sunnudagur fór í dýralækni, kaffidrykkju og að búa til mat fyrir tengdó sem er með brotinn hryggjartind. ( vont )
dagurinn í dag fer í að fylgjast með ketti, gefa lyf, tala við lögfræðing og ganga frá mótmælum við deiliskipulag reykjavíkurborgar, heimsækja ónýta yfirnorn, gera skattframtal, þrífa 1 stk. íbúð, senda manninn með hauginn í þvottahús......og síðast en ekki síst: vinna.
á morgun verður svo frumsýning á kvikmyndafrumraun fangors, sem tekin var fyrir 3 árum síðan. er ekki laust við að stress læðist að mér. er reyndar að ég held á tjaldinu í 3 sekúndur, og segi eina hallærislega setningu, en sama. óþægileg tilhugsun að vita ekki hvort maður hefur gert sig að algeru fífli eða bara smá..:Þ