ahhhhhhhh! sældarlíf. tóm gleði alla helgina. við elfa unnum bílaleikinn í gær, og tel ég áframhaldandi sigurgöngu okkar næsta vísa.
kosningavaka verður haldin á vesturgötu næstu helgi. þeir sem vilja endilega melda sig, og lýðræðisleg atkvæðagreiðsla mun skera úr um hvort horft verður á kosningavöku rúv eða stöðvar 2. ( nema hvort tveggja verði, svo ég sé nú 100% dipló )
fangor lýsir hryggð sinni vegna þess óorðs sem feministafélagið er að fá á sig vegna öfgakenndrar framkomu nokkurra einstaklinga. ég tek undir með unni
það fer hlýnandi og sól hækkar á lofti. hárið lýsist og húðin gyllist. því ber fagna. hver veit nema fangor bjóði upp á sangriu þegar hitinn loks skríður upp fyrir 10 stigin..?