ekki nóg með að fangor sé ofurhetja og rokkstjarna, heldur vardreki líka ! í ljósi þessara nýfengnu upplýsinga mun fangor nýta nýfundna vængi og fljúga til kaupmannahafnar við sólarupprás. ( og hvað voru mörg n í því? ) lúti baunarnir ekki vilja mínum verður kaupmannahöfn næst á eftir karþagó lögð í eyði.......
væntanlega verður lítið um blogg næstu daga, nema netkaffi verði í vegi mínum og svo vilji til að rigni. annars flýg ég heim aftur á mánudagskvöld. nema náttúrulega ég komi ekkert aftur? það ku vera gott í baunalandi. verst að missa af kakkalakkakappreiðunum um helgina. treysti á elfuálf til að hvetja okkar menn. og vér munum hafa sigur. rauði liturinn rúlar!
og ekki má gleyma að prómótera uppáhalds snorgilinn minn sem mun taka heiminn með trompi í sumar!