þá er svandís mín flogin á braut. *sakn, sakn* vona að hún hafi það sem allrabest í útlandinu.
í kvöld stendur til stomp hjá fangor og vel völdum félögum, ( þess ber að geta að stompgrúppan er þess heiðurs aðnjótandi að vera eina bandið þar sem minn ástkæri steini rót stígur á svið og spilar með... og hann þarf ekki að róta! :þ ) þeir sem verða með eyrun opin í miðbænum um hálfáttaleytið ættu að geta heyrt slagómana frá Iðnó.....
fangor hlakkar til að fara í júrópartý dauðans með kokteilum og dansi í stofunni hjá fulhildi annað kvöld, ekki veitir af að hressa hana við eftir allt þetta vesen með kosningarnar og john :þ verða sveittir hamstrar teygaðir í botn!
að lokum vil ég leggja til að: a) karþagó verði lögð í eyði og b) vinnustöðum verði lokað vegna veðurs. ég hata að sitja inni og mygla þegar veðrið er svona gott. *grunt*